„Hataði það sem þau gerðu“

Kennari fangelsaður fyrir að misnota nemendur sína

Breski kennarinn Adam Gutteridge var fyrr í dag dæmdur til fangelsisvistar fyrir að hafa misnotað þrjá nemendur sína kynferðislega. Hann kenndi við grunnskóla í Dorset á Bretlandi, en var einnig þekkt andlit eftir auglýsingaherferð fyrir ráðningarskrifstofu, að því er kemur fram á vef BBC.

Gutteridge viðurkenndi fyrir rétti að hafa brotið á stúlkunum, en ákæra saksóknara hljóðaði upp á tíu liði. Var hann talinn hafa misnotað vald sitt yfir stúlkunum og aðstöðu sína sem kennara þeirra gróflega. „Það sem var í gangi var skammarlegt og skemmdarverk af þinni hálfu,“ sagði dómari málsins, Peter Johnson.

„Hjálp við námið“

Gutteridge starfaði við skóla stúlknanna á árunum 2002-2007. Hann mun hafa undirbúið samband sitt við stúlkurnar gaumgæfilega, meðal annars með því að koma á netspjalls sambandi við þær undir þeim formerkjum að hann væri að aðstoða þær við námið. Á stuttum tíma varð spjallið þó kynferðislegt og á stuttum tíma voru stúlkurnar farnar að hitta hann á laun. Viðurkenndi hann að hafa átt við þær kynmök og munnmök.

Hataði það sem þau gerðu

Ein stúlknanna þekkti Gutteridge í auglýsingunni sem hann lék í og sagði hún lögreglu að það hefði opnað fyrir flóðgátt slæmra minninga. Hún fór því til lögreglunnar og kærði hann og í kjölfarið gerðu hinar stúlkurnar það líka.

Ein stúlkan tjáði lögreglunni að hún „Hataði það sem þau gerðu,“ og sagði að sér hefði liðið illa á meðan á samskiptum hennar við Gutteridge stóð.

Hinsvegar fannst henni eins og að hann væri kærastinn hennar og sagðist hún ekki hafa vitað hvernig hún ætti að slíta sambandinu. Þá varð ein stúlknanna við beiðni hans um að senda af sér myndir í litlu sem engu. Hann átti það til að bjóða henni heim til sín þar sem þau horfðu gjarnan á kvikmyndir. „Hún hélt að hún væri ástfangin af honum og sagði honum það,“ segir saksóknari málsins, Simon Jones.

Í skólaferðalagi varð þriðja stúlkan fyrir misnotkun af henni Gutteridge.

Stúlkurnar sendi frá sér, hver og ein, yfirlýsingu þar sem þær segja allar að Gutteridge hafi svipt þær unglingsárum og sakleysi sínu. „Heimurinn virðist dekkri veröld núna,“ segir ein þeirra. Þær segjast gera sér grein fyrir því núna að sambandið var óeðlilegt.

Gutteridge fékk fjögurra ára dóm og þarf að skrá sig á lista yfir kynferðisbrotamenn í Bretlandi.

Nánar um málið hér á síðu Huffington Post.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.