„Var ekki einu sinni boðið á myndina“

Engilbert Jensen í málaferlum vegna notkunar lagsins Þú og ég, í Svartur á leik

Engilbert Jensen í Hljómum stendur í málaferlum vegna brots á sæmdarrétti flytjenda í myndinni Svartur á leik. Lagið Þú og ég var endurhljóðblandað fyrir kvikmyndina en það var hljómsveitin Hljómar sem flutti það upphaflega og gerði frægt á sjöunda áratugnum. Lagið sjálft er eftir Gunnar Þórðarson og Ólaf Gauk.

Frank Hall endurhljóðblandaði lagið og notaðist við upprunalegu upptökuna.

Engilbert segir framleiðendur ekki hafa haft nokkurt samráð við sig um notkun á laginu eða myndbrotum úr upptöku af Hljómum sem þeir hafi notað til kynningar á myndinni. „Mér var ekki einu sinni boðið á myndina,“ segir Engilbert í samtali við DV.

Engilbert segist hafa gert kröfu um fimm og hálfa milljón í bætur vegna notkunar Zik Zak á lagi Hljóma.

Uppfært: Í DV í dag er réttilega sagt frá því að Engilbert Jensen standi í málaferlum vegna brots á sæmdarrétti flytjenda vegna notkunar lags hljómsveitarinnar Hljóma, Þú og ég, í myndinni Svartur á leik. Engilbert stendur þó ekki einn í þessum málaferlum heldur einnig félagar hans í hljómsveitinni Hljómum, að sögn lögfræðings þeirra.

Endurhljóðblöndun á Þú og ég

Þetta er aðeins brot af greininni sem birtist í DV í dag. Áskrifendur geta lesið hana í heild á DV.is með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.