Teitur ætlar að endurgreiða styrkina

„Það verður skemmtilegt“

Bloggarinn Teitur Atlason ætlar sér að endurgreiða hverja krónu til baka til þeirra sem studdu hann vegna stefnu Gunnlaugs Sigmundssonar og frú gegn honum. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag var Gunnlaugi gert að greiða málskostnað Teits eftir að meiðyrðamáli sem Gunnlaugur höfðaði gegn Teiti var vísað frá. Þarf Gunnlaugur að greiða eina og hálfa milljón króna vegna þess.

Í samtali við DV segist Teitur vera þakklátur þeim sem studdu hann.

„Ég fékk símtöl, tölvupósta, heimsóknir og ég veit ekki hvað þar sem fólk studdi mig með ráð og dáð. Ég setti á fót söfnun vegna kostnaðar í málinu og fékk til liðs við mig endurskoðenda til að fara yfir alla reikninga. Þeir eru reyndar ekki flóknir. Það er lögfræðingurinn og tveir flugmiðar fram og til baka frá Kaupmannahöfn. Þessi söfnunarreikningur hefur eiginlega náð að dekka stóran hluta útgjaldanna hingað til. Ég mun að endingu endurgreiða hverja einustu krónu sem fólk hefur stutt mig um. Það verður skemmtilegt.“

Málið var höfðað vegna skrifa Teits um Kögunarmálið en á bloggsíðu sinni rifjaði hann upp umfjöllun Morgunblaðsins um Kögun.

Tvær kröfur voru gerðar í málinu. Annarri kröfunni, sem bæði Gunnlaugur og eiginkona hans, gerðu á Teit var vísað frá dómnum en Teitur var sýknaður af hinni kröfunni. Auk þess voru hjónin dæmd til að greiða Teiti 1,5 milljónir króna í málskostnað.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.