Segja dóminn rangan og íhuga áfrýjun

Gunnlaugur og Sigríður ekki sátt við frávísun málsins

Lögfræðingur Gunnlaugs M. Sigmundssonar og Sigríðar G. Sigurbjörnsdóttur hefur sent frá sér yfirlýsingu fyrir hönd umbjóðenda sinna í kjölfar þess að meiðyrðamál þeirra á hendur Teiti Atlasyni var vísað frá í Héraðsdómi fyrr í dag.

Í yfirlýsingunni segir að það sé nauðsynlegt að það komi fram „að það sé mat stefnenda að dómurinn sé rangur í veigamiklum atriðum og fullt tilefni sé til þess að íhuga áfrýjun.“

Í yfirlýsingunni segir að: „. Dómurinn kemur sér undan því að taka á þeirri grunnspurningu málsins hvort tilefnislaust netníð eins og það sem stefnendur hafa mátt þola af hálfu stefnda fái staðist lög. Frávísun aðalsakar stríðir gegn fyrri dómafordæmum Hæstaréttar í sambærilegum málum. Að auki fæst ekki staðist að sýkna í framhaldssök vegna atvika sem sannanlega áttu sér stað eftir að stefndi hafði sett umstefnd meiðandi ummæli á netið.“

Hjónin stefndu Teiti í mars í fyrra, fyrir skrif hans á bloggsíðu sína um Kögunarmálið en í skrifum sínum rifjaði hann upp umfjöllun Morgunblaðsins um Kögun.

Tvær kröfur voru gerðar í málinu. Annari kröfunni, sem bæði Gunnlaugur og eiginkona hans, gerðu á Teit var vísað frá dómnum en Teitur var sýknaður af hinni kröfunni. Auk þess voru hjónin dæmd til að greiða Teiti 1,5 milljónir króna í málskostnað.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.