Kokkur í Los Angeles, í Bandaríkjunum, greindi frá því við yfirheyrslu hvernig hann eldaði líkamsleifar eiginkonu sinnar í marga daga.
Kokkurinn heitir David Viens en eiginkona hans, Dawn Viens, hvarf í október árið 2009. Í mars í fyrra greindi David lögreglumönnum frá því að þeir ættu ekki eftir að finna lík eiginkonu hans.
„Ég hægeldaði líkið og tók það fjóra daga,“ sagði David en upptaka af yfirheyrslunni var leikin við réttarhöld í gær.
Eftir að David komst að því að hann væri grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína tók hann þá ákvörðun að reyna svipta sig lífi með því að stökkva fram af bjargi. Hann stórslasaðist eftir þá tilraun en lifið af. Hann viðurkenndi að hafa losað sig við lík eiginkonu sinnar þegar lögreglumenn heimsóttu hann á sjúkrahúsið og spurðu hann út í málið, að því er bandaríska dagblaðið Los Angeles Times greinir frá.

Harmleikur á Egilsstöðum
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi