Það er tómt bull og kjaftæði að íslensk stjórnvöld standi sérstaklega vörð um þá er verst standa segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem deilir hart á stjörnvöld fyrir að standa ekki við loforð um hækkun atvinnuleysisbóta.
Vilhjálmi er heitt í hamsi á bloggi sínu á DV vegna málsins þar sem hann talar um svik stjórnvalda gagnvart þeim er höllustum fæti standi. Hann veltir fyrir sér hvort ekki sé tilefni til lögsóknar á hendur ríkinu vegna þessa.
Þar vísar hann til þess að stjórnvöld hafa ekki hækkað atvinnuleysisbætur til jafns við lægstu laun eins og hann telur að samist hafi um. Með því að halda bótum óbreyttum sé beinlínis verið að svíkja atvinnulausa um tugi og jafnvel hundruð milljóna króna.
[...] „Það er á kristaltæru að atvinnuleitendur munar svo sannarlega um 12.000 kr. á mánuði og sorglegt til þess að vita að ríkisstjórn félagshyggjunnar hafi svikið atvinnuleitendur um greiðslur sem nema tugum ef ekki hundruðum milljónum króna á liðnum árum. Ég veit hvað gerist þegar atvinnurekendur standa ekki við gerða samninga, jú þeim er stefnt fyrir dómstóla. Því er algerlega spurning hvort ekki eigi að stefna ríkisstjórn Íslands fyrir dómstóla vegna síendurtekinna svika við alþýðu þessa lands og krefjast þess að stjórnvöld standi við þau samkomulög sem undirrituð hafa verið í hinum ýmsu málum.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013