„Mannlegur harmleikur“

Karlmaðurinn enn í lífshættu

Karlmaður á fertugsaldri liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að öflug sprenging varð í fjölbýlishúsi í Ofanleiti á sunnudag.

Málið er enn í rannsókn en lögreglan gefur ekkert upp að svo stöddu um hana.

„Þetta er mannlegur harmleikur,“ segir Jakob Ingi Ásgeirsson nágranni sem fór ekki varhluta af þeim hörmungum sem áttu sér stað. Nágrannar hafa lýst því hvernig húsið nötraði eftir háværan sprengjuhvell rétt fyrir hádegi á sunnudag. Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Reykjavík var kallað á vettvang og lauk slökkvistörfum til fulls um eftirmiðdegið.

Hinn slasaði er með alvarleg brunasár en hann var inni í íbúðinni þegar sprengingin varð. Fólk úr nágrenninu var fljótt á vettvang og aðstoðaði manninn. Hann gekk þó sjálfur út úr íbúðinni og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.

Nánari umfjöllun um málið er að finna í DV í dag. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni inn á DV.is með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.