Ólánsamur þjófur

Borgar sig ekki að stela greiðslukorti afgreiðslumanns

Lögreglan í Miami í Bandaríkjunum handtók á dögunum karlmann sem reyndi að nota stolið greiðslukort til að greiða fyrir bjór á bar í borginni. Óhætt er að segja að tilraun mannsins hafi misheppnast illilega.

Hann braust inn í bifreið sem stóð skammt frá barnum og stal þar greiðslukorti. Maðurinn, David Weber 53 ára, gekk svo rakleiðis inn á barinn þar sem hann pantaði bjór. Þegar kom að því að greiða tók afgreiðslumaðurinn eftir því að á kortinu sem Weber rétti honum var mynd af honum sjálfum og nafn. Kortinu hafði Weber því stolið úr bifreið barþjónsins sem tók á móti kortinu.

Barþjónninn hringdi strax á lögreglu sem kom á vettvang og handtók Weber.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.