Frétt í framvindu Síðast uppfært klukkan 12:52.
Karlmaður er alvarlega slasaður eftir að sprenging varð í blokk við Ofantleiti í morgun. Sprenginin var að sögn gríðarlega öflug. „Maður sér það á hlutunum sem liggja hér í kring um húsið að það hefur verið mikill þrýstikraftur í þessari sprengingu,“ hefur RÚV eftir Jóni Viðari Matthíasyni slökkvuliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins.
Maðurinn sem meiddist í sprengingunni var með alvarleg brunasár en hann komst út úr íbúðinni að sjálfsdáðum. Innanstokksmunum, glerbrotum og öðru braki rigndi yfir leikvöll sem er gengt húsinu en sem betur fer var ekkert barn að leik þar þegar sprengingin varð.
Tildrög sprengingarinnar liggja ekki fyrir en íbúðin er mikið skemmd. Slökkvulið hefur verið á vettvangi í morgun.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013