Móðirin steinsvaf meðan barnið grét

Lögreglan fékk óvenjulega tilkynningu í nótt.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk óvenjulega tilkynningu rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. Tilkynnt var um mikinn barnsgrát og að barnið hefði verið búið að gráta nánast alla nóttina.

Vaknaði grunur um að barnið væri eitt heima þar sem enginn kom til dyra þrátt fyrir að búið væri að berja duglega á hurðina. Því var fenginn lásasmiður til að opna íbúðina og kom þá í ljós að móðirin var í rúminu við hliðina á barninu en svaf svona fast að hún rumskaði ekki fyrr en lögreglan var komin inn á gafl hjá henni.

Í gærkvöldi var einnig tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti. Þar hafði maðurinn verið stunginn í handlegginn með bitvopni. Þrír menn voru handteknir og er málið í rannsókn. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að töluverð ölvun hafi verið í bænum en engin stórmál að ofangreindu undanskildu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.