Húðflúrarinn Fjölnir Geir Bragason lauk BA-námi í myndhöggi frá Myndlista- og handíðaskólanum og þegar hann ákvað að finna list sinni farveg í húðflúrinu varð faðir hans, listamaðurinn Bragi Ásgeirsson, fyrir miklum vonbrigðum.
„Hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð en það breyttist. Hann er mjög sáttur í dag. Hann sá bara hvað ég hafði fram að færa og að ég gat séð fyrir mér sem listamaður,“ segir Fjölnir og bendir á að hann sé eflaust einn af fáum sem hafi farið beint úr listnámi í að sjá fyrir sér með sinni eigin list. Og um leið var hann að gera eitthvað nýtt. Hann lítur í raun á sig sem brautryðjanda í greininni á Íslandi ásamt Jóni Páli og Helga tattú.
„Pabbi var mikið að tuða yfir þessu við aðra listamenn. Það var almennt vitað að hann var ekkert sáttur. Síðan kom sá tímapunktur. Það kom til mín manneskja sem sagðist hafa spurt hann á einhverri sýningaropnuninni hvað ég væri að spá, en þá snéri kallinn sér við og sagði: Fjölnir er að gera góða hluti.“
Í einlægu viðtali í helgarblaði DV ræðir Fjölnir meðal annars um föður sinn sem missti heyrnina níu ára gamall eftir að hafa fengið heilahimubólgu og fjölskyldu sína sem honum tókst að sameina á nýjan leik eftir að hann varð edrú. Áskrifendur DV geta lesið allt viðtalið með því að smella á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013