„Barnaskapur“ að kvikmynd sé orsök mótmælanna

Jóhannes Björn stígur fram og gagnrýnir viðhorf Egils Helgasonar

„En að halda því fram að einhver kvikmynd hafi gert meira en að sprengja blöðru sem þegar var búið að blása allt of mikið í er hreinn barnaskapur.“ Þetta er á meðal þess sem Jóhannes Björn, samfélagsrýnir og höfundur bókarinnar Falið vald, segir í ummælum við þessa frétt. Gagnrýnir hann með þessu þau viðhorf sem eru hávær á vesturlöndum, og meðal annars birtast í ummælum þáttastjórnmandans Egils Helgasonar, að ofbeldisfull mótmæli í og við bandarísk sendiráð undanfarna daga séu tilkomin vegna kvikmyndar. Vill Jóhannes meina að miklu meira búi hér að baki, að halda öðru fram sé mikil einföldun.

Jóhannes Björn segir meðal annars: „Múslimar gera sér grein fyrir að það er búið að stimpla þá sem óvini Vesturlanda. Þessi stimpill er hluti áróðursherferðar sem réttlætir endalaus hernaðarafskipti á svæðinu. Auðvitað er víða pottur brotinn í þessum löndum og endurbóta þörf. Staða kvenna er afleit og trúarofstækið hræðilegt. En að halda því fram að einhver kvikmynd hafi gert meira en að sprengja blöðru sem þegar var búið að blása allt of mikið í er hreinn barnaskapur.“ Þá vitnar Jóhannes í hinn virta bandaríska hagfræðing, Dr. Paul Craig Roberts, sem starfaði meðal annars hjá Reagan stjórninni. Hann segir meðal annars þetta um þessa túlkun fjölmiðla, í lauslegri þýðingu DV:

„Reynið að ímynda ykkur bjagaðri fréttaflutning en þennan hjá amerísku „frípressunni“. Í ellefu ár hefur Washington í krafti réttmætrar forystu sinnar á alþjóðavettvangi sent hersveitir, sprengjuflugvélar, orrustuþotur, árásarþyrlur, fjarstýrðar vélar, sem og launmorðssveitir inn í sjö múslimalönd. Tvö þessara múslimalanda, Írak og Líbía, og mögulega fleiri eftir því hvernig þú lítur á það, hafa horft upp á það hvernig ríkisstjórnum þeirra var kollvarpað af Washington og löndin síðan skilin eftir í ringulreið.“

Þá segir Craig Roberts, sem Jóhannes Björn vitnar í, að árásir Washington á sjö lönd hafi falið í sér að brúðkaup voru sprengd í loft upp, „jarðarfarir, fótboltaleikir barna, sveitabýli, spítalar, hjálparstarfsmenn, skólar, fólk á gangi eftir götum, þorpsbúar, en múslimunum er alveg sama! Þeir skilja vel að hinir vel meinandi Bandaríkjamenn sem elska þá og vilja allt fyrir mannréttindi þeirra gera, eru að færa þeim lýðrlæði og kvenréttindi.“

Þá segir hann ennfremur að milljónin sem hafi þegar látið lífið, og hinir sem séu örkumla, séu einugnis hluti af því „lága verði sem þurfi að reiða fram til þess að fá verða frelsaður af Wahington.“ Af þessu og fleiru má vera ljóst að Jóhannes Björn telur ástæður mótmælanna síðustu daga eiga sér mun fleiri og flóknari ástæður en að léleg B-mynd hafi verið búin til í Ameríku.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.