Bretaprins æfur yfir brjóstamyndum

Tímarit birtir myndir af konu hans berbrjósta

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans eru sögð æf af reiði eftir að franskt tímarit birti í dag ljósmyndir teknar meðan hjónin voru í leyfi í suðurhluta Frakklands. Á mörgum myndanna má sjá Katrínu bera að ofan.

Þó breskir fjölmiðlar séu afar ágengir gagnvart kóngafólkinu sínu hefur enginn þeirra nokkru sinni sýnt ljósmyndir á borð við þær sem franska tímaritið Closer hefur nú birt. Eru þær teknar af Vilhjálmi og Katrínu áður en þau héldu í ferð um Asíu en þá voru þau í leyfi í héraðinu Provence.

Leita lögfræðingar bresku hirðarinnar nú leiða til að lögsækja tímaritið franska vegna málsins en þar á bæ þykir birtingin hafa farið yfir strikið í því sem eðlilegt getur talist.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.