Nauðgaði henni um hábjartan dag: „Manstu eftir mér?“

Hafði náð mynd af honum að fróa sér

„Manstu eftir mér?“ spurði nauðgari á fimmtugsaldri fórnarlamb sitt, konu á áttræðisaldri, áður en hann lét til skarar skríða. Hann nauðgaði konunni og barði hana í Central Park-almenningsgarðinum í New York borg í gær.

Forsaga málsins er samkvæmt New York Times sú að hún hafði komið auga á manninn fyrir um það bil einni og hálfri viku síðan, þar sem hann var að fróa sér í garðinum. Hún smellti af mynd. Hann gekk þá upp að henni, heimtaði að hún myndi eyða myndinni og reyndi að hrifsa af henni myndavélina þegar hún neitaði að verða við því.

Maðurinn komst undan með bakpoka konunnar, þar sem myndavélin var geymd. Lögreglan í New York hefur þegar grunaðan einstakling í haldi, en konan lýsti honum sem rússneskum eða úkraínskum manni á fimmtugsaldri.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.