Hörður malar gull með smálánafyrirtæki

Aldrei fleiri lent í vandræðum samkvæmt sænskum fjölmiðlum

Ertu hlynnt/ur starfsemi smálánafyrirtækja?




Sjá niðurstöður

Á einu ári hefur fjöldi þeirra sem lendir í vandræðum vegna smálána í Svíþjóð aukist um 70 prósent. Eitt stærsta smálánafyrirtækið í Svíþjóð, Folkia, var stofnað í Osló af Íslendingnum Herði Bender. Greint er frá því í sænskum fjölmiðlum að smálánafyrirtækin komist framhjá löggjöf sem bannar óeðlilega háa vexti af lánum, með ýmis konar gjaldtöku undir öðrum formerkjum.

Ríkissaksóknarinn Thomas Häggström hefur boðað til neyðarfundar með neytendasamtökunum vegna málsins, þar sem nauðsynlega þurfi að skera úr um það hvar ábyrgðin liggi vegna smálána þar í landi.

Halda að smálánin séu hálmstrá

„Við þurfum að tala saman,“ segir saksóknarinn Häggström við sænska Expressen. Blaðið reiknaði út um það bil 23 þúsund prósenta ársvexti á smáláni frá dótturfélagi Folkia. Að sögn sænskra fjölmiðla malar smálánafélögin gull og yfirvöld virðast ekkert geta gert til þess að sporna við ágangi fyrirtækjanna.

„Margir skuldsettir einstaklingar halda að svona smálán séu hálmstrá til þess að koma þeim upp úr skuldafeninu. En þetta er ekki hálmstrá, heldur akkeri sem verður bara til þess að þeir sökkvi dýpra,“ segir Jan Åkerlund, hjá Kronofogden stofnuninni, við sænska SVT. Stofnunin aðstoðar skulduga einstaklinga.

Ósanngjörn gagnrýni

Hörður Bender ræddi á sínum tíma við DV um smálánin í Svíþjóð og sagði gagnrýni um svimandi háa vexti ósanngjarna. Hann tók dæmi af því að tekið sé fjögur þúsund sænskra króna lán hjá Folkia. Þá þurfi að greiða á milli 450-500 krónur í lántökukostnað, eða um 12-13 prósent af lánsupphæðinni.

„Menn voru fljótir að dæma lánin þegar þeir sáu þau fyrst. En það eru ótal dæmi í Skandinavíu þar sem starfsemin hefur verið í gangi lengi. Þetta getur verið gríðarlega mikilvægt fyrir fólk til að ná endum saman, sem er hálfpartinn utan bankakerfisins og er kannski með tekjur sem eru ekki reglubundnar. Við hvetjum okkar kúnna til að fá aldrei meira lánað en þeir þurfa á að halda,“ sagði Hörður: „Það er enginn að troða þessu niður í kokið á neinum. Ef það er séð til þess að hlutirnir séu gerðir af fagmennsku er það síðan markaðarins að ákveða hvort hann vilji þjónustuna.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.