Fjarlægja ekki móðgandi myndband

Umdeilt myndskeið áfram í boði á vef YouTube

Forsvarsmenn netmiðilsins YouTube hyggjast ekki fjarlægja myndskeið það er vakið hefur gríðarlega heift meðal múslima og var tilefni árása á sendiráð og konsúlat Bandaríkjanna í Egyptalandi og Líbíu sem kostað hefur fjögur mannslíf.

Myndskeiðið er brot úr kvikmynd sem bandarískur aðili lét framleiða og sýnir spámanninn Múhammeð í mjög svo svörtu ljósi. Meðal annars stundar spámaðurinn þar kynlíf með mörgum konum, svindlar og beitir lygum svo eitthvað sé nefnt. Þykir myndbandið mjög móðgandi í alla staði.

En Google, sem á YouTube, ætlar að halda efninu inni þó reyndar hafi verið lokað fyrir aðgang að því frá Líbíu og Egyptalandi. Annars staðar er það opið þeim er áhuga hafa og eru nettengdir að frátöldu Afganistan þar sem stjórnvöld tóku það í sínar hendur að loka fyrir YouTube.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.