Símon Örn Reynisson
simon@dv.is
22:21 › 13. september 2012
Lögreglan hefur girt af svæði við Efstasund í Vogahverfinu og nágrönnum er sagt að halda sig innandyra.
Að sögn lögreglunnar fannst þar amfetamínverksmiðja; tæki og tól til fíkniefnagerðar og efni til þess.
Nú er unnið að því með aðstoð sérfræðinga frá Háskóla Íslands og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að fjarlægja búnaðinn af vettvangi. Garðurinn er flóðalýstur og skúr við húsið einnig.
Húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og vistaður á lögreglustöð. Engin sprengihætta er samfara þeim aðgerðum lögreglu sem nú standa yfir. Á vettvangi er slökkviliðsbíll og stór lögreglubíll, en nú í kvöld munu óeinkennisklæddir menn einnig hafa verið að störfum á svæðinu, með svartan jeppa til umráða.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013