Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:33 › 10. september 2012
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur keypt íslensku sjónvarpsþáttaseríuna Réttur, en þættirnir voru sýndir hér á landi árið 2009 og fjalla líf og störf lögfræðinga í Reykjavík.
Þættirnir munu heita Ritter á ensku, og það eru Howard Gordon and Alex Cary sem munu sjá um framleiðslu þeirra ytra.
Þeir eru þekktir fyrir að endurgera alþjóðlegt sjónvarpsefni fyrir bandarískan markað og sáu meðal annars um framleiðlu á vinsælu þáttaseríunni Homeland, sem byggð er á ísraelskum sjónvarpsþáttum.
Réttur var framleiddur af Saga Film og það voru leikararnir Magnús Jónsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir and Víkingur Kristjánsson sem fóru með aðalhlutverk í þáttunum en ekki er ljóst hverjir munu fara með hlutverk í þeim bandarísku.

Hemmi Gunn fallinn frá