Varhugavert ástand í Laugardal vegna sinuelda

Almannavarnanefnd Vestfjarða fundar

Almannavarnanefnd Vestfjarða fundar í kvöld vegna sinueldana á Hrafnabjörgum í Laugardal í Ísafjarðardjúpi sem hafa logað síðan á föstudag. Í samtali við vef Morgunblaðsins sagði Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, að eldurinn hefði frekar breitt úr sér og ástandið orðið fremur varhugavert. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð vettvang í dag og hefur slökkviliðið í Súðavík notið aðstoðar slökkviliðsins á Ísafirði við slökkvistarfið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.