Ronan Keating kostaði um níu milljónir króna

Umdeild ákvörðun Þjóðhátíðarnefndar

Kostnaðurinn við að fá írska tónlistarmanninn Ronan Keating til að skemmta á Þjóðhátíð í Eyjum nemur um það bil 9 milljónum. Upphæðin jafngildir 470 miðum á hátíðina. Ákvörðunin var umdeild enda er þjóðhátíðin eins konar fjáröflunarviðburður fyrir íþróttafélag ÍBV. Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa einnig verið gagnrýndir fyrir að verja ekki nægilegu fé í forvarnir gegn kynferðisafbrotum.

„Eyjamenn sýndu góða viðleitni með því að fara í sýnilegt forvarnarátak og setja upp öryggismyndavélar. En þeir ættu að nýta mun meiri fjármuni til að berjast gegn þessari skuggahlið Þjóðhátíðarinnar,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. „Það er ekki ásættanlegt að árlega séu haldnar hátíðir þar sem fastir fylgifiskar eru grófustu mannréttindabrot,“ segir hún.

Ronan Keating spilaði í rúmlega klukkutíma á stóra sviðinu á hátíðinni og eru Þjóðhátíðargestir sagðir hafa látið vel af. Keating er heimsþekktur söngvari og lagasmiður, hefur selt fleiri en 22 milljónir platna og var dómari í The X Factor í Ástralíu.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.