„Það er ekki komin niðurstaða í málið ennþá,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu, í samtali við DV, um bakreikningsrannsókn stofnunarinnar á útgerðarfélaginu Saltveri í Reykjanesbæ.
Meira en eitt og hálft ár er síðan Fiskistofa hóf rannsókn á meintu löndunarsvindli fyrirtækisins, en það hafði meðal annars verið sakað opinberlega um skipulega og afar grófa löndun, þar sem tugum ef ekki hundruðum tonna, væri landað fram hjá vigt. Þessi mikla töf á rannsókn málsins þykir óeðlileg.
Fyrirtækið er í eigu Þorsteins Erlingssonar en hann er stjórnarmaður í LÍU auk þess að vera fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem og stjórnarmaður í Sparisjóðnum í Keflavík. Þá var hann stjórnarformaður Reykjaneshafnar á sama tíma og meint löndunarsvindl fyrirtækisins á að hafa viðgengist við höfnina.
Umfangsmikið svindl
DV fjallaði ítarlega um málið í ágúst í fyrra en þá hermdu heimildir blaðsins að Þorsteini yrði gert að greiða yfir 200 milljónir króna í bakreikning til Fiskistofu vegna meints löndunarsvindls. Síðan þá er liðið eitt ár án þess að niðurstaða hafi fengist í málið. Samkvæmt fiskistofustjóra hafa ný gögn bæst í sarpinn á tímabilinu, en þau hafa verið tekin sérstaklega til skoðunar hjá stofnuninni og hefur það hægt á ferlinu.
„Jú, þetta er klárlega langur tími,“ segir Eyþór aðspurður hvort rannsóknin hafi ekki tekið lengri tíma en búist var við í upphafi. Sé miðað við umfang rannsóknarinnar hjá Fiskistofu, þann tíma sem málið hefur verið í ferli og þær upphæðir sem nefndar hafa verið í tengslum við það, má ljóst vera að hér gæti verið um að ræða eitthvert umfangsmesta löndunarsvindl sem komið hefur verið upp um hér á landi. Fyrrverandi starfsmaður Saltvers, Þorleifur Frímann Guðmundsson, hefur sagt frá því opinberlega hvernig tugum tonna var landað fram hjá vigt á meðan hann starfaði hjá fyrirtækinu.
Áskrifendur geta lesið fréttina í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Hemmi Gunn fallinn frá