Eldur í Steikhúsinu

Glóð komst í tréstoðir í gipsvegg

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi var lögreglu var tilkynnt um eld í Steikhúsinu við Tryggvagötu, það var um minniháttar bruna að ræða. Glóð hafði komist í tréstoðir í gipsvegg og talsverður reykur myndaðist.

Slökkvilið rauf vegginn og slökkti í glóðinni.

Vaktin hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu var fremur róleg. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur og annar ökumaður var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.