Vilja að sinfónían og óperan greiði tvöfalt hærri húsaleigu

Peningarnir koma úr sama vasa

Stjórnendur Hörpu vilja tvöfalda leigu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar, en þær greiða samtals 170 milljónir á ári fyrir aðstöðu í Hörpu. Stjórnendur hússins vilja hækka þá upphæð í 340 milljónir og bæta með því reksturinn á húsinu.

Fréttablaðið greinir frá en þar kemur meðal annars fram niðurstaða úttektar KPMG þar sem segir að hækkunin myndi lenda á ríkissjóði og Reykjavíkurborg. KPMG fór yfir rekstur og skipulag Hörpu fyrir eigendur hússins, sem eru ríkissjóður og Reykjavíkurborg.

Rekstraráætlun Hörpu gerir ráð fyrir að rekstrartap hennar verði 407 milljónir króna á þessu ári og er það til viðbótar við þann tæpa milljarð króna sem ríki og borg leggja húsinu til vegna greiðslu á lánum.

Þjónustu- og leigusamningur gerir ráð fyrir því að Íslenska óperan greiði 48 milljónir króna á ári. Sá samningur var gerður í september 2010. Stjórnendur Hörpu vilja að sú upphæð hækki í 82 milljónir króna.

Sinfóníuhljómsveit Íslands greiðir 122 milljónir króna til Hörpu vegna leigu og þjónustu. Samningurinn var gerður árið 2007.

Í fráviksáætlun þeirra er gert ráð fyrir ríflega tvöföldun leigu- og þjónustusamningsins úr 122 milljónum króna á ári í 259 milljónir króna. Sú upphæð þarf að koma frá rekstraraðilum hljómsveitarinnar, íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg, en það eru einmitt sömu aðilar og eiga húsið.

Fréttablaðið greinir frá


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.