Utanvegaakstur við Rauðavatn

Það fór ekki vel fyrir þessum ökumanni sem ákvað að aka utan vegar við Rauðavatn líkt og sést á meðfylgjandi mynd. Atvikið átti sér stað nú í kvöld en ekki hafði verið óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna atviksins þegar DV.is kannaði málið.

Sjónarvottur segir þrjá unga einstaklinga hafa verið í bílnum sem var ekið fremur ógætilega út að vatninu með þeim afleiðingum að bíllinn festist þar í sandinum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.