Lítill drengur barðist við að ná andanum í þrjár mínútur í Sundlaug Akureyrar síðastliðinn föstudag áður en sundlaugargestir urðu þess varir að eitthvað amaði að. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld en það voru tveir tólf ára drengir sem komu þessum sex ára dreng til bjargar. Komu þeir honum upp á sundlaugarbakkann þar sem sundlaugarverðir komu til aðstoðar.
Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 sagði Elín Gísladóttir, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar, að af öryggisupptökum að dæma liðu um þrjár mínútur frá því drengurinn fór út í laugina og þar til honum var bjargað. Var drengurinn sagður hafa verið í stórum hópi fólks og sumir jafnvel næstum rekist utan í hann en enginn áttað sig á því hvað væri að gerast nema tólf ára bjargvættirnir. Elín sagði drukknun vera hljóðlátt fyrirbæri því manneskjan getur illa gert vart við sig ef hún nær ekki andanum.
Drengurinn var útskrifaður af sjúkrahúsinu á sunnudag, að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013