Rúss­nesk ævin­týra­snekkja við Reykja­víkur­höfn

Siglir pólanna á milli

Hin þrjátíu metra langa seglskúta Scorpius liggur nú við Reykjavíkurhöfn, á bak við Hörpu. Bíll frá Atlantsolíu er að dæla á tanka skipsins sem eru þó nokkrir og komið hefur verið fyrir appelsínugulum pokum sem notaðir eru sem viðbótartankar á dekki skútunnar.

Áhöfn skútunnar eru Rússar og Úkraínumenn. Skipið hefur siglt um pólana en í apríl síðastliðnum voru áhafnarmeðlimir hætt komnir og var skútunnar saknað nærri Suðurskautslandinu. Skipið hafði skemmst lítillega og glímdi við mikla ísingu. Létu áhafnarmeðlimir þó vita af sér fyrir rest en skipið stefnir á hringferð um heiminn, pólanna á milli. 


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.