Magnaðar myndir frá Mars

Curiosity er lent

Geimfarið Curiosity lenti í gærmorgun á Mars og strax eru farnar að berast ljósmyndir frá því. Það tók geimfarið tæplega níu mánuði að komast til Mars. Myndirnar eru nokkuð smáar auk þess sem þær eru svarthvítar, en geimfarið ætti að geta sent hágæða ljósmyndir fljótlega.

Stærsta geimfar sem hefur verið sent

Curiosity er stærsta og háþróaðasta geimfar sem nokkurn tímann hefur verið sent til annarrar reikistjörnu Það er á stærð á við lítinn jeppa. Næstu tvö árin mun Curiosity ferðast um Mars.

Á vef Stjörnufræðifélagsins segir að Curiosity sé í raun jarðfræðingur á hjólum, útbúinn fullkomnum tækjum til efnagreiningar. Á honum eru 17 myndavélar, þar á meðal háskerpuvélar en með þeim gætum við fengið að sjá fyrstu háskerpumyndskeiðin frá Mars í þrívídd.

Með þessum tækjum á jeppinn að finna út hvort Gale gígurinn var einhvern tímann lífvænlegur. Geimfarið er á sex hjólum og kemst hraðast á fjögurra sentímetra hraða á sekúndu. Ástæðan fyrir því að geimfarið ferðast ekki hraðar er sú að ef að það fer of geyst yfir skapast hætta á því að það verði fyrir hnjaski en þá er ómögulegt að bjarga því.

Nánar er hægt að fylgjast nánar með leiðangri Curiosity á bloggsíðu Stjörnufræðivefsinshér. Þar er að finna ítarlega umfjöllun um Curiosity.

Í meðfylgjandi myndasafni og myndböndum má sjá myndir frá vélmenninu


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.