Þorbjörg Henný Eiríksdóttir lést í bílslysi í október síðastliðnum, aðeins 17 ára gömul.
Henný vann í Kríu veitingasölu á Eskifirði með náminu. Systir hennar vinnur þar í dag og lenti nýlega í undarlegu atviki tengdu systur hennar. Það kom maður inn til þess að skila veski Hennýjar en fjölskyldan hafði leitað þess og var viss um að hún hefði haft það með sér eða með sér þegar slysið átti sér stað. „Við vorum búin að biðja lögregluna um að leita að því,“ segir Kristrún Antonsdóttir móðir Hennýjar.
„Það gerðist svo 18. júní að það kemur maður inn í sjoppuna og hann labbar beint til systur hennar með veski og segist hafa fundið það á Sorpu og spyr hvort að stelpan sem eigi veskið sé ekki að vinna þarna. Hann spyr hana hvort hún þekki hana og þegar hann opnar veskið þá er þar fullt af kortum og myndum og hún þekkir það strax og segir já, þetta er systir mín. Maðurinn hefur bara búið hérna í ár og tengdi andlitið strax við Kríu veitingasölu en vissi auðvitað ekkert að hann væri að tala við systur hennar.“
Kristrún segir afar einkennilegt að veskinu hafi verið hent en strákar sem voru að leik við Sorpu segjast hafa séð lögreglumann henda poka í ruslið. „Þeir kíktu í pokann og sáu þá veskið. Þeim fannst það svo fallegt að þeir tóku það. Þeir hittu svo föður annars þeirra sem sagðist ætla að koma því til skila og fór í sjoppuna til þess.“
Kristrún segist nokkuð viss um að þarna hafi einhver mistök átt sér stað hjá lögreglu og það hafi verið visst áfall að fá veskið með þessum hætti. „Við fórum og töluðum við lögregluna hér og lýstum yfir óánægju okkar með þetta. Veskið hefur verið einhvers staðar þó við vitum ekki hvar en það hefur ekki legið úti í 8 mánuði eins og ég sagði við lögreglumanninn hérna sem var reyndar jafn miður sín yfir þessu og við. En það er eitthvað einkennilegt og skrýtið að því hafi ekki verið komið til skila til okkar. Þetta eru einkennileg vinnubrögð og við höfum kvartað yfir þeim en ekki fengið nein svör við því hvað gæti hafa farið úrskeiðis,“ segir Kristrún og vill gjarnan koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur.
Hún segir fjölskylduna þó vera mjög ánægða að hafa fengið veskið að nýju. „Það skiptir máli fyrir okkur og í raun ótrúlegt að það hafi komist til okkar. Það var búið að henda því og ég er afar þakklát fyrir að það hafi skilað sér.“
Lesa má viðtalið í heild sinni í helgarblaði DV. Þar er einnig fjallað nánar um banaslys í umferðinni á Íslandi. Undanfarin áratug eða síðan árið 2002 hafa 196 dáið í umferðarslysum en um 1000 manns hafa látið lífið í slíkum slysum hér á landi síðan að skráning hófst árið 1966. Þá eru ótaldir þeir sem hafa slasast alvarlega en það eru um 10.000 manns.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013