Lögreglan í Osló telur að sextán ára stúlku hafi verið rænt á laugardagskvöldið, en til hennar hefur ekki spurst síðan. Farsími hennar, sokkur og skór fundust nálægt heimili hennar.
Stúlkan, Sigrid Giskegjerdet Schjetne var á heimleið frá vinkonu sinni á síðastliðið laugardagskvöld en skilaði sér aldrei heim. Foreldar hennar gerðu lögreglunni viðvart sem setti af stað umfangsmikla leit stuttu síðar. Leitinni var hætt í gærkvöldi um klukkan hálf ellefu, en hún hófst aftur snemma í morgun.
Sigrid var í gallastuttbuxum, blárri peysu og gráum hlýrabol þegar hún hvarf. Hún er sextán ára, um 170 sentímetrar á hæð, með ljósbrúnt hár og bláeygð.
Fundu farsíma
Stúlkan hvarf í úthverfinu Østensjø í Osló, en farsími hennar, skór og einn sokkur fundust í um þrjú hundruð metra fjarlægð frá heimili hennar.
Leitarhundum hefur gengið illa að rekja slóð hennar og telur lögregla að Sigrid hafi jafnvel verið neydd til að setjast upp í bifreið sem hafi svo keyrt af vettvangi. Hundarnir geta rekið slóð hennar að leikskóla í nágrenni við heimili hennar, en þar endar slóðin.
Telur sig hafa heyrt hana öskra
Nágranni Sigrid telur sig hafa heyrt öskur um það leyti sem Sigrid hvarf. „Ég vaknaði við öskur, sem hljómaði eins og það kæmi frá einni eða tveimur stúlkum. Það var milli klukkan tólf og eitt um nóttina. Fyrst hélt ég bara að einhver væri að grínast,“ segir nágranninn við norska dagblaðið VG, en segir að hann hafi hugsað sig aftur um eftir að Sigrid hvarf.
Lögreglan skoðar nú allt myndefni úr öryggismyndavélum sem staðsettar eru nálægt leikskólanum og vonar að það geti gefið einhverjar vísbendingar um hvar stúlkunnar.
Leita í skóginum
Lögreglan ákvað í morgun að leita víðar og hefur leitað í nálægu skóglendi, sem og á bílastæðum bæði í Østensjø og víðar.
Kafarar, leitarhundar, þyrlur, lögreglumenn og sjálfboðaliðar voru sendir af stað í morgun. Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa boðið sig fram til að aðstoða við leitina.
Lögreglan leitar einnig í skóglendinu Østmarka og hefur beðið fólk um að fara ekki inn í skóginn. Er hún að notast við hitamyndavél og fari fólk að flykkjast inn í skóginn eru engar líkur á að leitarmennirnir fái marktækar niðurstöður.
„Það er áhyggjuefni að það séu svo fáar vísbendingar,“ segir lögreglumaðurinn Frank Olsson við norska ríkisútvarpið. Hann segir að lögreglunni hafi ekki borist nægilega sértækar ábendingar um það hvar Sigrid gæti verið, en segist hafa fengið „áhugaverðar“ ábendingar sem verið sé að skoða.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013