Að minnsta kosti einn hefur látist og tveir særst í hryðjuverkaárás á trúarsöfnuð síka í úthverfi Milwaukee, Oak Creek í Wisconsin, í dag, sunnudag. Talið er að fleira fólk sé í haldi inni í byggingu safnaðarins og að minnsta kosti einn byssumaður, að því er fram kemur í umfjöllun CNN um málið. Sjónarvottar lýsa einum árásarmanninum sem sköllóttum hvítum karlmanni. Fjölmiðlar vestanhafs forðast að kalla árásina hryðjuverkaárás og notast frekar við orðið skotárás eða „shooting“.
Á vef Russia Today kemur fram að vitni hafi séð nokkra byssumenn en misvísandi fréttir eru um það hvort einn þeirra hafi þegar verið yfirbugaður af lögreglu. Alderman Dan Jakubczyk hjá lögreglu Oak Creek sagði nýlega í samtali við CNN að lögregla væri að takast á við erfiðar aðstæður.
Lögreglan í Oak Creek verst allra frétta en samkvæmt frétt CNN mátti sjá lík liggja á bílastæði við trúarhofið. Kathy Moran, yfirhjúkrunarfræðingur á St. Mary's spítalanum í Milwaukee sagði í samtali við CNN að nýlegustu fregnir hermdu að um tuttugu manns hefðu slasast í árásinni. „Ég vil bara koma því á framfæri að þetta hof var byggt fyrir fjölmörgum árum og það hafa aldrei verið nein vandræði tengd því,“ sagði Jakubczyk hjá lögreglu Oak Creek í samtali við CNN.
Gurcharan Grewal, forseti trúarhóps síka í Wisconsin, sagði í samtali við CNN að hann hefði heyrt það úr mismunandi áttum að ennþá væru særðir einstaklingar inni í hofinu. Þá hefði hann einnig heyrt að líklegast sé að árásarmennirnir hafi verið fleiri en einn. Lögreglan hefur lokað svæðinu af. Grewal talaði við CNN úr öðru hofi síka, einhverjum tuttugu mílum frá árásarstaðnum og sagði fólk hafa miklar áhyggjur af ástandinu.
Síkar er fylgjandi síkisma. Orðið síki kemur úr sanskrítar rótinni 'śikkya' sem þýðir „fylgismaður“ og „nemandi.“ Flestir síkar hafa ætt að rekja til Punjab á Indlandi og flestir þeirra búa þar enn þó að síkar búi nú um allan heim. Hægt er að þekkja síkiska karlmenn og sumar konur á því að þau bera alltaf túrban til að þekja sítt hár sitt. Túrbaninnn er mjög sérstakur og lítur ekki út eins og túrbanar sem aðrar þjóðir í Asíu bera. Nú á tímum bera þó ekki allir síkar túrbana né hafa sítt hár.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013