Sagður hátt settur í „stærstu glæpa­sam­tökum heims“ með 19 þúsund á mánuði

Hilmar Leifsson hætti í Fáfni vegna áreitisins sem fylgdi þvi að vera í samtökunum

Liðsmenn félaga sem íslensk lögregluyfirvöld hafa sett á athugunarlista yfir samtök sem stunda skipulagða glæpastarfsemi eru ekki með há laun miðað við álagningaskrá ríkisskattstjóra. DV kannaði laun nokkurra einstaklinga sem opinberlega hafa verið kenndir við eða kenna sig sjálfa við samtök sem sögð eru tengjast skipulagðri glæpastarfsemi.

Meðal annars kannaði DV tekjur liðsmanna Hells Angels, Outlaws, liðsmanna stuðningsklúbba þessara félaga auk þekktra ofbeldismanna. Í ljós kom að aðeins einn einstaklingur af sautján er með launatekjur sem nema meiru en 400 þúsund krónum á mánuði.

Pabbi stjórnar

Hilmar Þór Leifsson er fyrrverandi meðlimur Hells Angels eða Fáfnis eins og samtökin hétu þá. Á þeim tíma sem Hilmar var meðlimur var Fáfnir í formlegu inngönguferli inn í samtök Vítisengla. Hilmar er sagður hafa hætt í samtökunum vegna þess áreitis sem þeim fylgir. Hilmar er samkvæmt ríkisskattstjóra með lág laun, eða aðeins 19.010 krónur á mánuði.

Skúli Þór Hilmarsson sonur Hilmars er samkvæmt álagningaseðlum skattstjóra föðurbetrungur með rétt rúmlega tvöföld laun föður síns. Laun Skúla eru samkvæmt ríkisskattstjóra 41.663 krónur.

Árið 2010 var Skúli dæmdur í fangelsi fyrir að kýla annan mann „margsinnis með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut opið beinbrot á nefi, bólgu og mar umhverfis hægra auga og mar við vinstra auga.“ Segir í dómnum að Skúli hafi talið að fórnarlambið væri í tygjum við kærustu sína. Fyrir dómnum kom einnig fram að Skúli hefði hótað fórnarlambi sínu og meðal annars sagt við hann að faðir sinn væri hátt settur í „stærstu glæpasamtökum heims“ og að lítið mál væri að láta menn á hans vegum vinna barnshafandi konu fórnarlambsins mein.

Launatölurnar byggja á útreikningum á útsvarsstofni einstaklinganna miðað við upplýsingar sem fram koma í álagningaskrá ríkisskattstjóra.

Áskrifendur geta lesið allt um laun nokkra þekktra manna í undirheimum með því að smella á „Meira“.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.