Lilja Mósesdóttir, þingmaður og fyrrverandi meðlimur í þingflokki Vinstri grænna fór mikinn á fésbókarsíðu sinni í gær. Lilja sem er formaður Samstöðu, flokks um lýðræði og velferð, sagði meðal annars í ummælum á síðu sinni að það væri tími til kominn að Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna og reyndar þjóðin öll, tækju sig til og segðu Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, að þegja í eitt skipti fyrir öll.
Ummælin lét Lilja falla í kjölfar viðtals Spegilsins við fjármálaráðherra þann 31. júlí síðsatliðinn en þar tjáði hans sig um Grímsstaðamálið og sagði meðal annars að ráðherrar ættu að spara stóru orðin til að gera sig ekki vanhæfa í málinu. Lilja er afar ósátt við þessi ummæli Steingríms sem og fleiri og segir viðtalið í raun uppfullt af hrokafullum athugasemdum um menn eins og Ögmund Jónasson og umræðuna í samfélaginu.
Þá sagðist Steingrímur í viðtalinu ekki gefa neitt fyrir þá vitleysisumræðu sem verið hefði í gangi undanfarna daga í tengslum við Grímsstaðamálið. Ljóst er að Lilja gefur lítið fyrir þessi orð fyrrum samflokksmanns síns en hún ræðst harkalega að honum í athugasemdinni: „Steingrímur J. allsherjarráðherra hefur stórelga ofmetnast eftir að hann komst til valda. Kominn tími til að Ögmundur og þjóðin segi þessum manni að þegja!“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013