„Hún var rosalega dugleg og góð stelpa. Hún hafði mikinn áhuga á hestum, ferðalögum og útiveru. Hún var mjög vinamörg og var bara algjör demantur sem skilur eftir svo góðar minningar sem hjálpa okkur í sorginni.“
Svona lýsir Kristrún Antonsdóttir dóttur sinni, Þorbjörgu Henný Eiríksdóttur, eða Henný eins og hún var alltaf kölluð. Henný var aðeins 17 ára gömul þegar hún dó í bílslysi þann 12. október síðastliðinn. Henný var á leið í Menntaskólann á Egilsstöðum þar sem hún stundaði nám þegar slysið átti sér stað á veginum um Fagradal á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða, rétt fyrir ofan Grænafell. Fólksbíll, sem Henný ók, skall framan á vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Henný lést samstundis en vinkona hennar sem einnig var farþegi í bílnum lifði slysið af. Mikil hálka var á veginum og talið er að Henný hafi misst stjórn á bílnum af þeim sökum.
Í helgarblaði DV er nánar fjallað um banaslys í umferðinni. Undanfarin áratug eða síðan árið 2002 hafa 196 dáið í umferðarslysum en um 1000 manns hafa látið lífið í slíkum slysum hér á landi síðan að skráning hófst árið 1966. Þá eru ótaldir þeir sem hafa slasast alvarlega en það eru um 10.000 manns.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013