Síðasti Þristurinn fær ekki að fljúga

Þurfa að taka til lista yfir 69 ár af breytingum á sögufrægri vél

„Þetta er ekki óvinnandi vegur en þetta er gífurleg vinna,“ segir Tómas Dagur Helgason, flugmaður og formaður Þristavinafélagsins DC3, um það verkefni sem bíður forsvarsmanna félagsins ef fljúga á hinni sögufrægu flugvél Páli Sveinssyni, betur þekktri sem Þristinum, á ný. Flugmálastjórn endurnýjaði ekki lofthæfisskírteini vélarinnar sem rann út um mánaðamótin og er óhætt að segja að stjórn Þristavinafélagsins hafi verið sett fyrir umfangsmikið heimaverkefni til að fá skírteinið endurnýjað.

„Hver flugvél fær lofthæfisskírteini í eitt ár sem útgefið er af Flugmálastjórn,“ útskýrir Tómas Dagur í samtali við DV. „Þegar við sóttum um endurnýjun vildu þeir ekki veita það nema við legðum fram lista yfir allar þær breytingar sem gerðar hafa verið á vélinni síðan 1943, þegar hún var framleidd.“

Hann bætir við að fram þurfi að koma að farið var fram á sömu gögn í fyrra en þá fékk félagið ársfrest til að taka saman þennan lista. Það hafi hins vegar ekki náðst að klára hann enda mikil vinna eins og gefur að skilja.

Til að bregðast við þessu segir Tómas Dagur að ákveðið hafi verið að fljúga hinni sögufrægu vél norður á land þann 31. júlí síðastliðinn. „Til þess að hún væri bara í skjóli og hægt væri að stinga henni inn ef þetta tekur langan tíma.“

Aðspurður hvort hann viti hvenær félagið muni ná að taka saman þennan lista segir hann erfitt að segja til um það og bendir á að forsvarsmenn félagsins sinni því í frítíma sínum. „Okkar persónulegi áhugi á þessari vél og saga hennar rekur okkur áfram. Og við lítum svo á að okkur beri skylda til að halda vélinni fljúgandi.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.