Góðæri í kortunum

Krónan styrkist, atvinnuleysið minnkar, kaupmáttur fer vaxandi og bjartsýni Íslendinga hefur ekki verið meiri í mörg ár

„Það er auðvitað eðli kapítalismans að hann gengur í bylgjum, og rétt eins og við vitum að sólin kemur upp að morgni getum við fullyrt að á eftir samdrætti kemur þensla.“ Þetta segir Þórólfur Matthíasson hagfræðingur í samtali við DV þegar hann er spurður út í það hvort nýtt þensluskeið sé hafið á Íslandi. Þórólfur segir breytingarnar í íslenska efnahagslífinu hafa verið hraðari en menn hafi almennt búist við. „Við sjáum mun kröftugri uppsveiflu hér á landi en í löndunum í kringum okkur.“

Landsframleiðsla hér á landi hefur aukist um ellefu prósent á síðustu mánuðum og hefur hvergi í Evrópu aukist eins mikið. Krónan hefur styrkst, verðbólgan er að hjaðna, atvinnuleysi að minnka, störfum að fjölga og kaupmáttur fer vaxandi. Þá hefur bjartsýni landsmanna ekki verið meiri síðan 2008, sé litið til væntingavísitölu Gallup sem mælir viðhorf landans til efnahagsmála. Nýjustu fregnir eru síðan þær að yfirdráttarlán landsmanna séu orðin jafn há í krónum talið og þau voru í ágúst 2008.

Í nýlegri skýrslu ríkisskattstjóra segir að í skattframtölum einstaklinga og niðurstöðum álagningar séu ákveðin teikn um að hagur Íslendinga sé að vænkast eftir harðæri síðustu ára. Gylfi Zoëga hagfræðingur lýsti því nýlega yfir að kreppan væri búin, en sitt sýnist hverjum. DV ræddi við Guðmund Ólafsson hagfræðing og Þórólf Matthíasson um stöðu efnahagsmála, mögulegar bólur og þær hröðu breytingar sem eru að verða í efnahagslífinu. Þá tók blaðið saman nýlegar tölur úr umfjöllun fjölmiðla, eins og um fjölgun utanlandsferða, gríðarlega söluaukningu á bílum, styrkingu krónunnar, aukna einkaneyslu, en flest virðist þetta benda til þess að mikill viðsnúningur hafi að undanförnu orðið í efnahagslífi landans.

Ítarlega úttekt um stöðu efnahagsmála má lesa í helgarblaði DV.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.