Maðurinn sem reyndi að lokka 7 ára stelpur frá Hörðuvallaskóla á bak við íþróttahúsið Kórinn í gær er líklega fundinn. Maðurinn sem er sagður vera á bilinu 60-70 ára reyndi að fá stelpurnar til sín með því að bjóða þeim rabarbara.
Hann reyndi að fá stúlkurnar til að knúsa sig og kyssa og sagði það yrði leyndarmálið þeirra.
Þrír 16 ára drengir voru á gangi á skólalóð Hörðuvallaskóla og rákust á mann sem passaði við lýsingu fjölmiðla og voru vissir að um sama mann væri að ræða og þann sem reyndi að lokka stelpurnar til sín. Þeir veittu honum því eftirför. „Hann þóttist vera að tína dósir í stóran ruslapoka en pokinn var þó tómur. Því var þetta eins og feluleikur hjá honum,“ segir einn drengjanna.
Drengirnir reyndu að láta lítið fyrir sér fara og eltu manninn heim til sín og hringdu í lögregluna á meðan. „Við sáum lögregluna koma og ná í hann.“
Þeir segja lögregluna hafa komið heim til mannsins og tekið hann með sér í lögreglubíl.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi