Maður beraði sig fyrir framan börn

Annar reyndi að komast undan lögreglunni á hlaupum

Um átta leytið í gærkvöldi var maður handtekinn í austurbænum í Reykjavík vegna blygðunarsemisbrots þar sem hann beraði sig fyrir framan krakka.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur einnig fram að maður hafi verið laminn í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að nokkrar tennur brotnuðu. Árásarmaðurinn er ófundinn.

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvunaraksturs og fjórir grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna undir stýri. Einn ökumannanna sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna reyndi að flýja lögregluna á hlaupum eftir að hafa verið stöðvaður. Lögreglan náði honum og handtóku og gistir hann nú fangageymslu lögreglunnar.

Lögreglan segir eitthvað hafa verið um ölvunarlæti í miðbænum en annars frekar rólegt.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.