Kona tilkynnti um nauðgun á Þjóðhátíð

Lögreglan rannsakar málið

Mikill erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt. Kona tilkynnti lögreglunni um nauðgun á Þjóðhátíð og rannsakar lögreglan nú málið.

Nokkur minniháttar fíkniefnamál komu upp. Þrír sitja í fangageymslum fyrir ölvun, slagsmál og fíkniefnabrot.

Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði kalt hafa verið í veðri í nótt og það leiði oft til meiri láta en þegar hlýtt er.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.