Íslenskir drengir fengu ekki að fljúga heim

„Þetta fer í hart“

„Að mínu mati var þetta geðþóttaákvörðun starfsmanns,“ segir Þórður Freyr Hilmarsson, stjúpfaðir tveggja íslenskra drengja sem fengu ekki að ferðast frá Íslandi til Danmerkur vegna útrunninna vegabréfa. Þórður og fjölskylda hans eru búsett í Danmörku en voru í fríi á Íslandi.

„Þetta fer í hart,“ segir Þórður Freyr sem beið með fjölskyldu sinni á Keflavíkurflugvelli eftir að kallað yrði út í flugvélina þegar honum var tjáð að drengirnir gætu ekki yfirgefið landið án vegabréfa í gildi. Því komst fjölskyldan ekki komist heim til Danmerkur þennan dag.

Hann segir að fyrir brottförina hafi hann gengið úr skugga um að drengirnir gætu ferðast til Danmerkur frá Íslandi þrátt fyrir að vegabréf þeirra væru ekki í gildi því Ísland væri aðili að Schengen-samkomulaginu.

Hann segir jafnframt kostnaðinn við að kaupa nýja flugmiða hafi kostað um 270 þúsund krónur. Þá séu önnur óþægindi ekki talin með.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, bendir á að samkvæmt reglum flugfélagsins sé starfsfólki óheimilt að senda íslensk börn úr landi án vegabréfs.

Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild sinni með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.