Fornir fjendur aftur í samkeppni

„Baugsfeðgar stunduðu ekki heilbrigða og heiðarlega samkeppni“

„Ég fagna allri samkeppni svo lengi sem hún er á heiðarlegum nótum,“ segir Jón Gerald Sullenberger, eigandi lágvöruverðsverslunarinnar Kosts. Hann á í beinni samkeppni við fyrirtækið Iceland, nýopnaða lágvöruverðsverslun Jóhannesar Jónssonar, sem áður var kenndur við Bónus en vill nú vera kallaður Jóhannes í Iceland. Báðar verslanirnar eru í Kópavogi svo ætla má að hart verði barist um viðskiptavini. „Baugsfeðgar stunduðu ekki heilbrigða og heiðarlega samkeppni hér áður fyrr og það varð þeim að falli,“ segir Jón.

Um 70 prósent af vörum Iceland eru framleiddar hér á landi en Malcolm Walker, meðeigandi Jóhannesar, sér versluninni fyrir aðfluttum vörum. Að sögn Jóhannesar er Walker traustur bakhjarl Iceland á Íslandi. „Ég reikna með að þetta verði 50–50 hjá okkur,“ segir Jóhannes um eignarhaldið.

Walker er á grænni grein, enda keypti hann nýlega 77 prósenta hlut í Iceland verslunarkeðjunni í Bretlandi af slitastjórn Landsbankans. Fram kom á vef Reuters að Walker hefði aflað lánsfjár til kaupanna að jafnvirði 175 milljarða íslenskra króna.

Fjallað er ítarlega um málið í dag. Áskrifendur geta lesið alla greinina með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.