Ágústa Friðriksdóttir var stödd á tjaldstæðinu í Laugardal í nótt og varð heldur betur hissa þegar hún uppgötvaði sporðdreka inn á salernisaðstöðunni.
„Ég og vinkona mín ætluðum að nota salernið. Þar voru staddir tveir útlendingar sem sögðu okkur að á einum klósettburstanum væri lifandi sporðdreki. Þeim fannst það ekki jafn merkilegt og okkur og kipptu sér ekkert upp við það,“ segir Ágústa.
Hún segir næturvörðinn á svæðinu hafa orðið uppnuminn enda sé hann líffræðingur. Hann hafi sett sporðdrekann í box og ætlaði að senda hann til rannsókna.
Markús Einarsson, framkvæmdastjóri tjaldsvæðisins, er í sumarfríi og var því ekki á staðnum þegar sporðdrekinn fannst. En eftir að hafa rætt við starfsfólk tjaldstæðisins í síma sagði hann meindýraeyði eða lögreglu hafa komið á svæðið eftir sporðdrekafundinn.

Hemmi Gunn fallinn frá