Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
18:05 › 4. ágúst 2012
Traktoratorfærukeppni fór fram á Flúðum í dag, að viðstöddum um sex þúsund áhorfendum. Tíu keppendur tóku þátt og þeir komu víða að. Eyþór Árnason, ljósmyndari DV, var á svæðinu og náði þessum mögnuðu myndum af keppninni.
Keppnin hefur verið haldin um hverja Verslunarmannahelgi í rúman áratug og nýtur talsverðra vinsælda. Traktorarnir sem keppt er á eru flestir þrjátíu til fjörutíu ára gamlir og eru allir framdrifslausir. Reglur keppninnar kveða á um að afl traktoranna megi ekki vera yfir fimmtíu hestöfl. Margir breyta þó upprunalegum vélum á margan hátt.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013