Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:49 › 4. ágúst 2012
Karlmaður er alvarlega slasaður eftir líkamsárás sem átti sér stað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt. Hann er talinn höfuðkúpubrotinn.
Þekktur ofbeldismaður er grunaður um að hafa ráðist á hann. Lögreglan segir ofbeldismanninn gista fangageymslur þangað til að rennur af honum og hann sé tilbúinn til yfirheyrslu. Það ætti að verða seinna í dag.
Lögreglan segir jafnframt vitni vera að árásinni. Hún skoðar nú upptökur eftirlitsmyndavéla til að fá frekari upplýsingar um verknaðinn.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013