Lögreglan getur ekki beitt sér gegn umfangsmiklum undirheimaforingjum vegna skorts á lagaheimildum að því er fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Var lögreglan þar sögð telja sig eiga betri möguleika á að ná slíkum höfuðpaurum ef hún hefði forvirkar rannsóknarheimildir. Þá yrði lögreglu heimilt að fylgjast með þessum foringjum án þess að hafa staðfestan grun um refsiverða háttsemi.
Í ársskýrlu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kom fram að afbrotum fækkaði verulega í fyrra. Lögreglan tók upp sérstakar aðgerðir gegn virkustu brotamönnunum og breyttu skipulagi til að geta tekist á við verkefnin, sem skýrir að stórum hluta fækkun brota á borð við innbrot og þjófnað, að því er fram kom á vef Vísis þar sem rætt var við Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, um fækkun afbrota.

Hemmi Gunn fallinn frá