Hrækti í andlitið á afgreiðslustúlku

Sagði honum að hann fengi ekki bjór

Óánægður viðskiptavinur á kaffihúsi á Akureyri skyrpti framan í afgreiðslustúlku í hádeginu í dag þegar hún neitaði honum um afgreiðslu.

Maðurinn mun hafa verið undir áhrifum vímuefna og bað konuna um bjór. Hún neitaði og sagði manninum að hann hefði fengið nóg.

RÚV greinir frá en þar segir að maðurinn hafi hótað að berja stúlkuna og í kjölfarið látið ófá fúkyrði falla um konuna og hrækti svo framan í hana. Maðurinn rauk á dyr áður en starfsfólk náði að hringja á lögreglu.

RÚV greinir frá


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.