Annie Mist: Þreytt en ánægð með að vera komin heim

Tekur því rólega um verslunarmannahelgina

Annie Mist Þórisdóttir, heimsmeistari í crossfit, er komin heim til Íslands og voru margir stuðningsmenn hennar og vinir samankomnir til að fagna henni fyrir utan CrossFit í Reykjavík.

„Það er æðislegt að fá svona góðar viðtökur. Fólkið sem ég keppti með úti hafði flest einungis sína nánustu fjölskyldu sem studdi sig en hér á ég greinilega stóra fjölskyldu sem styður mig,“ sagði Annie Mist þegar hún ávarpaði fjöldann.

Hún segist vera nokkuð þreytt og ætli þess vegna að taka því rólega um verslunarmannahelgina. „Ég ætla að slaka á um helgina og verja tíma með fjölskyldu minni. Kærastinn minn er bráðum að fara til Danmerkur og ég ætla að njóta tímans með honum,“ segir Annie Mist.

Margt framundan

Annie Mist verður á ferð og flugi á næstunni. Hún ætlar að kenna crossfit út í Sviss og síðan fer hún til New York í myndatöku. „Mig langar samt til að eyða eins miklum tíma hérna heima og ég mögulega get.“

Spurð hvort verði einhvern tímann keppt í crossfit á Ólympíuleikunum segist hún halda að svo verði ekki. „Ólympíuleikarnir eru rosalega skipulagðir en crossfit er ófyrirsjáanleg íþrótt. Á heimsmeistaramótinu fékk ég til dæmis að vita á mánudagskvöldi að keppnin myndi byrja tveimur dögum síðar, á miðvikudegi. Þá fékk ég líka fyrst að vita að ég myndi keppa í þríþraut. En crossfit gengur út á þetta – að vera viðbúin hverju sem er hvenær sem er,“ segir Annie Mist.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.