Apple slær met

Skaust upp fyrir Microsoft á lista yfir verðmætustu fyrirtæki sögunnar

Velgengni hugbúnaðarrisans Apple virðist engan endi ætla að taka. Fyrirtækið varð á mánudag verðmætasta fyrirtækið í sögu Kauphallarinnar á Wall Street í New York. Þann dag hækkaði gengi hlutabréfa í fyrirtækinu talsvert og við lokun markaða á mánudag, miðað við verð á hvern hlut í fyrirtækinu, var verðmæti þess 624 milljarðar dala, 74,5 þúsund milljarðar króna.

Fyrra metið átti annar hugbúnaðarrisi, Microsoft, en við upphaf netbólunnar árið 1999 var fyrirtækið, sem stofnað var af Bill Gates og Paul Allen árið 1975, metið á rúmlega 620 milljarða dala. Sé verðmæti Microsoft árið 1999 framreiknað til ársins 2012 á Microsoft þó enn metið. Miðað við það var Microsoft metið á 850 milljarða dala. Í dag er fyrirtækið hins vegar metið á 257 milljarða dala, 30,7 þúsund milljarða króna.

Til að setja verðmæti Apple í samhengi má geta þess að verg landsframleiðsla Grikklands er töluvert lægri en heildarverðmæti hlutabréfa í Apple. Það sama á við um fleiri lönd, meðal annars Austurríki, Argentínu og Suður-Afríku.

Gengi hlutabréfa í Apple hafa hækkað mikið á undanförnum viknum eftir að hafa staðið í stað um nokkurt skeið. Að sögn fjármálaspekinga á Wall Street má hækkun undanfarinna vikna rekja til bjartsýni fjárfesta. Þannig er iPhone 5 væntanlegur á næstu mánuðum sem mun að líkindum slá í gegn meðal neytenda og þá hyggst fyrirtækið gefa út minni og ódýrari útgáfu af iPad-spjaldtölvunni á næstu mánuðum.

Apple er langverðmætasta fyrirtækið á Wall Street en á eftir Apple kemur olíufyrirtækið Exxon Mobil sem kemst ekki með tærnar þar sem Apple hefur hælana. Apple er 54 prósentum verðmætara.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.