„Miðað við fjölda þessara auglýsinga þá virðast þessi fyrirtæki vera mjög arðbær. Þetta er mjög siðlaust, á mjög gráu svæði siðferðilega, samfélagið verður að taka á því og löggjöfin ef hún getur,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill hjá Góðum samskiptum um auglýsingar smálánafyrirtækjanna, sem áberandi eru í fjölmiðlum.
Tvisvar hefur verið reynt að koma lögum yfir starfsemi smálánafyrirtækja en í hvorugt skiptið komst frumvarpið í gegnum þingið, nú síðast vegna tímaskorts. Þriðju tilraunina á að gera núna í haust þegar frumvarpið verður lagt fram nánast óbreytt frá því síðast. DV hefur fjallað um skaðsemi smálána og á mánudag var fjallað um fíkla sem nota smálán til þess að kaupa sér vímuefni. Fjölmargir hafa lent í vítahring vegna lánanna en afar auðvelt er að fá lánin sem bera mjög háa vexti, sum upp í 600 prósent.
Í DV í dag er rýnt í auglýsingarnar en þær beinast oft sérstaklega að ungu fólki.


Hemmi Gunn fallinn frá