„Vonlaust að fá íbúð“

Slegist um íbúðir á síhækkandi leigumarkaði

„Það er vonlaust að fá íbúð, maður fer á milli íbúða og er að berjast um pínulitlar íbúðir á uppsprengdu verði við 100 aðra,“ segir einstæð móðir á leigumarkaðnum. Hún fékk á dögunum, eftir margra mánaða leit, loksins leigða íbúð og segir þungri byrði af sér létt. Hún er þó einungis ein af mörgum sem leita sér að íbúð á höfuðborgasvæðinu í dag og gengur illa að finna. Fjölmargir leigendur sem DV hefur rætt við hafa sömu sögu að segja.

Erfitt er að fá íbúðir til leigu, baráttan er hörð um þær fáu íbúðir sem eru í boði og leiguverðið er hátt, mun hærra en margir ráða við. Verst sé þó hversu ótryggt ástandið sé en núna er sá tími þegar hvað mest hreyfing er á leigumarkaðnum. „Þó ég sé komin með íbúð núna þá finnst manni maður samt ekki vera öruggur, það er svo algengt að fólk sé að leigja út íbúðir í stuttan tíma í senn og það vantar eitthvað öruggara úrræði,“ segir konan sem vill ekki láta nafn síns getið.

Samkvæmt mælingum frá Þjóðskrá Íslands þá hækkaði leiguverð á höfuðborgarsvæðinu um 3,2 prósent í júlí en það er mun meiri hækkun en hefur verið undanfarna mánuði en að meðaltali hefur sú hækkun verið 0,9 prósent. Dæmi eru um að 2- 3 herbergja íbúðir á almennum leigumarkaði séu verðlagðar í kringum150 þúsund krónur á dýrari svæðum höfuðborgarinar þó misjafnt eftir því hvar þær eru staðsettar í bænum.

Ítarlega umfjöllun um málið má lesa í DV í dag.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.