Sérsveitin kölluð til vegna skothvells

Hleypt af byssu inni í einbýlishúsi — Einn í haldi lögreglu

Lögreglunni í Hafnarfirði var tilkynnt um skothvell í Garðabæ síðdegis. Samkvæmt upplýsingum sem fram koma á vef RÚV var hleypt af byssu inni í einbýlishúsi við Sunnuflöt. Lögregla brást við tilkynningunni og sérsveit var kölluð til.

Einn maður var handtekinn og enginn slasaðist. Hverfinu var lokað um tíma en um þrjátíu lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni. Að sögn Leifs Gauta Sigurðssonar, varðstjóra í Hafnarfirði er aðgerðum nú lokið. Málið er til rannsóknar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.